Um Féló

Féló - Félagsmiðstöð Álftaness


Félagsmiðstöð Álftaness opnaði formlega 3. desember 2003. Í dag er félagsmiðstöðin Féló staðsett í íþróttamiðstöð Álftaness. Umsjónarmaður Féló er Íris Ósk Hafþórsdóttir og fimm starfsmenn eru í hlutastarfi, þau eru: Auður Hallgrímsdóttir, Viktor Ari Viktorsson, Karen Ösp Friðriksdótir, Grímur Kristinsson og Bjarni Dagur Karlsson. Eins mæta reynsluboltar frá fyrri árum og aðstoða á stærri viðburðum en það eru t.d. Erlendur Sveinsson og Ína Högnadóttir.

Féló er aðili í Samfés, Samtökum félagsmiðstöðva á Íslandi. Féló heyrir undir starfsvið íþrótta-, tómstunda- og menningarfulltrúa Álftaness.


Hlutverk Féló

Féló, félagsmiðstöð Álftaness hefur ákveðnu hlutverki að gegna með starfssemi sinni. Helstu hlutverk hennar eru:

  • Forvarnir og fræðsla
  • Viðurkennt tómstundastarf
  • Örvun félagsþroska og jákvæðra samskipta
  • Örvun frumkvæðis og ábyrgðar
  • Stuðla að virðingu gesta fyrir sjálfum sér, öðrum og starfinu í heild

 

Markmið Féló

  • Að styrkja forvarnir með því að bjóða unglingum upp á markvisst tómstundastarf
  • Að nemendur læri af eigin reynslu að nýta tækifæri og njóta hins daglega lífs og kynnast síbreytilegum heimi
  • Að nemendur verði virkjaðir til tómstundastarfa og áhugi þeirra vakinn, meðal annars á ræktun einstaklingsins og sjálftjáningu
  • Að starfshættir Féló taki mið af þroska og þörfum einstaklingsins og reynt verðir að koma til móts við mismunandi hæfileika hvers og eins
  • Að nemendinn sjálfur og hagsmunir hans séu ávallt í brennidepli í allri skipulagningu

 

Foreldrasamstarf

Féló vill vinna náið með foreldrum að málefnum ungs fólks. Gott samstarf við foreldra er mikilvægt fyrir starfsemi Féló og er starfsfólk Féló boðið og búið til samstarfs. Á haustin er stefnt að því að vera með erindi og kynningu á starfseminni á Aðalfundi foreldrafélagsins. Einnig eru kynningarbæklingar og bréf sendir heim til foreldra eftir þörfum. Gott samstarf allra sem umgangast börnin er gulls ígildi.

Haustfundur foreldrafélagsins verður 27. september 2011 og verður starfsfólk Féló þar með stutt erindi. Eftir fund er foreldrum boðið að koma og skoða aðstöðuna og hitta fólkið sem vinnur þar með börnum þeirra. Nemendraráð skólans mun sjá um kaffi og vöfflur.

Allar hugmyndir og ábendingar eru vel þegnar og er hægt að senda tölvupóst á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. . Símanúmerið í Féló er 540-4705, einnig er hægt að hringja í 821-5812 sem er GSM númer sem Féló notar í viðburðum utan félagsmiðstöðvarinnar t.d. í ferðum og á Vökunótt. Símanúmer umsjónarmanns, Írisar, er 821-5017 og er velkomið að hringja í hana.

.