Árshátíð Féló og Álftanesskóla. Á árshátiðinni voru teknar um 400 ljósmyndir. Árshátíðin var glæsileg og ekki hægt að setja inn nema brot af myndum hér á síðuna. Hér eru myndir af fjölmennari hópum ásamt því sem nokkrar myndir eru úr salnum og að sjálfsögðu nokkrar af starfsólkinu og kokknum sem var enginn annar en Friðrik V og hans frábæra lið.
Stór vika. Á fimmtudegi var Skólahreysti og föstudag og laugardag var Samfestingurinn. Það voru 60 Féló-ar sem fóru á Samfés ball á föstudeginum ásamt 4.440 öðrum krökkum úr félagsmiðstöðvum á Íslandi. Á laugardeginum var Söngkeppni Samfés og stóð Féló hljómsveitin ABA sig rosalega vel.
Jólaball. Hér eru myndir frá jólaballi unglingastigsins.
Jólaball. Haldið var jólaball fyrir yngri aldurshópinn og sá unglingastigið um framkvæmdina og undirbúning.
Stelpukvöld fyrir 8. - 10. bekk. 14. desember var haldið glæsilegt stelpukvöld fyrir stelpur í unglingadeildinni. Þær skipulögðu dagskrána sjálfar með aðstoð starfsmanna Féló. M.a. annars var boðið upp á bollakökur, tískusýningu, Féló-hljómsveitin ABA skemmti og Jón Jónsson kom í heimsókn og tók lagið.
Vökunótt fyrir 8. - 10.bekk. Vökunótt er stærsti viðburður haustsins. Þá vaka flestir nemendur heila nótt og gera skemmtilega og uppbyggilega hluti. Kvöldið byrjaði í íþróttasalnum með hópefli, eftir það fór samstilltur hópur saman í miðnætursund og að lokum var nóttin látin líða í Álftanesskóla. Um morguninn fóru ánægðir en þreyttir nemendur og starfsmenn heim eftir að hafa fengið grillaðar samlokur.
Stelpukvöld - 6.bekkur. Stelpukvöld 6. bekkjar var á Halloween og því tilvalið að mæta í búningum og með kökur í því þema.
Stelpukvöld - 7.bekkur. Kökuhlaðborð, spilað Playstation 3 Move og svo auðvitað spilasalurinn notaður. Mikil stemming og fjör hjá stelpunum.
Strákakvöld - 6. bekkur. Það var strákakvöld 17. október. Þeir spiluðu FIFA 12 í sjónvarpsherberginu varpað á stóra tjaldið. Leikjatölvuherbergið var síðan notað fyrir sjónvarpið.
Spurningakeppni - 5. bekkur. Mánudaginn 10. október var spurningakeppni í Féló. Keppnin var fyrir 5. bekk en áður höfðu verið keppnir fyrir 6. bekk og 7. bekk. Myndir eru væntanlegar frá þeim keppnum mjög fljótlega.
Bollakökukeppni fyrir 8. - 10. bekk. Mánudaginn 26. september var bollakökukeppni í Féló. Keppendur áttu að mæta með um 10 kökur og þriggja manna dómnefnd valdi bestu og fallegustu kökurnar. Alls voru 6 lið sem tóku þátt og kökurnar voru allar mjög flottar en ólíkar eins og myndirnar bera með sér.
Opnunarball Féló fyrir 8.bekk, 9.bekk og 10.bekk.
Opnunarball Féló fyrir 5. bekk og 6. bekk. Ballið var í umsjón nemendaráðs og tókst frábærlega. Ballið var í sal Álftanesskóla og notuð voru flott diskóljós, reykvél og alvöru hljóðkerfi. Nemendaráðið sá um danskennslu, spilaði tónlistina (DJ) og alla umsjón með ballinu. Mikil stemming var fyrir ballið og myndaðist löng röð áður en salurinn var opnaður.
Matreiðslukeppni Féló, 1, 2 og ELDA var haldin 19. september og tóku 6 lið þátt. Hráefnið var m.a. kjúklingabringa, pulsur, spaghetti, kartöflur, hrísgrjón, laukur, paprika og sólþurkaðir tómatar. Óhætt er að segja að allir hafi staðið sig vel og gert sitt besta.
7.bekkur. Miðvikudaginn 14. september var NEON-diskó hjá 7. bekk.
Í maí 2011 var sundlaugarpartý fyrir 5. - 7. bekk og síðar um kvöldið fyrir 8. - 10. bekk. Á milli var síðan haldin grillveisla fyrir báða hópana.








Myndasafn