Forsíða
ABA komst áfram !!!

Atriði Féló í söngkeppni Samfés komast áfram í úrslitakeppnina í kvöld og við erum ótrúlega stolt af þeim. Hlómsveitin ABA er skipuð þeim Báru Lind, Axel Fannari, Mannfreð Má og Arngrími Braga, öll nemendur í 10. bekk. Þau fluttu lagið Run með Snow Patrol með íslensku texta sem þau sömdu svo snilldarlega sjálf. Úrslitakeppnin verður þann 3. mars og því er um að gera að taka daginn frá því við ætlum að fjölmenna á keppnina.

Til hamingju Arngrímur, Axel, Bára og Mannfreð :)


Samsuð 2012
Föstudaginn 27.janúar  verður undankeppni söngkeppni Samfés haldin á Seltjarnarnesi, nánar tiltekið í Félagsheimili Seltjarnarness (við hlið sundlaugarinnar). Þegar keppni lýkur verður slegið upp balli og verða það DJ Jónas Óli og Axel Haraldsson sem halda uppi stuðinu.

Keppnin hefst kl. 18 og gert er ráð fyrir að ballinu ljúki kl. 22:00. Rúta fer frá Íþróttamiðstöðinni á Álftanesi kl. 17:00 og fer til baka um leið og ballið er búið, áætluð heimkoma er upp úr 22:30. Athugið að það er skylda að fara báðar leiðir með rútunni.

Einungis verður hægt að kaupa miða í forsölu og verða miðar seldir miðvikudagskvöldið 25. janúar í opnu húsi í Féló (opnar kl. 19:30). Skila verður leyfisbréfinu áður en farið er í rútuna á föstudag. Athugið að enginn fer í ferðina án leyfisbréfs.

Verð á keppnina, ballið og í rútu fram og til baka er 1.200 kr.

Starfsfólkið sem fer með í ferðina eru Karen Ösp og Viktor.

Lokað á föstudag

Það verður lokað föstudagskvöldið 20. janúar í Féló. Það verður opið á mánudag og miðvikudag í næstu viku og svo er það Söngkeppni Samfés á föstudag. Nánar auglýst síðar.

Kveðja, Íris og Auður.


Dagskrá fyrir miðstigið

Nú er komin dagskrá fyrir nemendur í 5.-7. bekk. Hægt er að sjá hana undir hverjum árgang fyrir sig hér til hliðar.


Dagskrá unglingadeildar 6. - 13. janúar

Mánudagur - kl. 19:30 - 22

Opið hús - hugmyndaríkir og áhugasamir geta komið hugmyndum fyrir kvöldstarfið á framfæri. Auður, Íris og Karen standa vaktina.

Miðvikudagur - kl. 19:30 - 22

Einn, tveir og baka - fyrirkomulag keppninnar er það sama og í einn, tveir og elda. Núna fá þátttakendur hráefni til baksturs og þurfa að framreiða gómsæta köku í lok kvölds. Skráning verður á mánudagskvöld í Féló eða hjá Írisi í 9:35 frímínútum á miðvikudag (í Féló). Auður, Íris og Viktor verða á vakt.

Föstudagurinn 13. janúar - kl. 19 - 22:30

Við ætlum að horfa á fyrstu myndina í þríleiknum The Lord of the Rings. Athugið að Féló opnar kl. 19 þetta kvöld og lokar ekki fyrr en kl. 22:30. Auður og Viktor ætla að bjóða upp á poppkorn með myndinni.


Féló opnar aftur eftir jólafrí

Kvöldstarf unglingadeildar hefst mánudaginn 9. janúar. Opið hús fyrir 5.-7. bekk hefst 16. janúar. Dagskrá mun koma inn á vefinn fljótlega.


Jólaball Féló og Álftanesskóla

Í dag 19. desember, kl. 17-19 verður jólaball Álftanesskóla og Féló fyrir 6. og 7.bekk í sal skólans. Plötusnúðurinn Axel IV mun halda uppi fjörinu.

Í kvöld kl. 20-23 verður svo jólaball unglingadeildar einnig í sal skólans. Plötusnúðurinn DJ Benni mun þeyta skífur. Allir að mæta prúðbúnir og með jólaskapið með sér.


Stelpukvöld unglingadeildar

 


Söngkeppni Féló 2011

Þá er komið að því, Söngkeppni Féló verður haldin miðvikudaginn 7. desember kl. 20 í Hátíðarsal íþróttahússins. Það verður kaffihúsastemmning meðal áhorfenda því heitt kakó og piparkökur verða í boði Féló. Endilega komið og eigið notalega stund með okkur inni í hlýjunni.

 


 

Bíó-kvöld föstudagskvöldið 2. desember

Viktor og Bjarni ætla að hafa bíó-kvöld á föstudagskvöld. Boðið verður upp á poppkorn með myndinni og sjoppan verður opin. Hægt verður að spila FIFA 12 eða vera í spilasalnum fyrir þá sem vilja.

Sjáumst hress og kát,

Íris...


Opið hús föstudagskvöldið 24. nóvember
Það verður opið hús fyrir unglingadeildina á föstudagskvöld. Fifa 12 verður í playstation 3, tónlist og neonljós í spilasalnum og X-factor í sjónvarpsherberginu. Viktor og Karen verða í föstudagsfjöri!

 


 


Opið á mánudaginn 21. nóvember

Athugið að það er opið á mánudaginn þó að skólinn sé með starfsdag. 5.bekkur er með opið hús kl. 17-19 og unglingadeildin kl. 19:30-22.

Sjáumst hress og kát.

Kær kveðja, Íris Ósk.


 

 

 


Lokað á föstudag eftir Vökunótt

Athugið að það er lokað í Féló föstudagskvöldið 11. nóvember.

______________________________________________________________________________________________________

 

Athugið að hægt er að skoða leyfisbréfið hér á síðunni.


 

Vökunótt nálgast...

Vökunótt unglingadeildar er fimmtudaginn 10. nóvember og því er aðeins vika þar til hún skellur á !!!

Leyfismiðar verða afhentir á mánudag með öllum upplýsingum.

 

 


 

Félagsmiðstöðvadagur Íslands - opið fyrir alla miðvikudag

Miðvikudaginn 2. nóvember standa félagsmiðstöðvar á Íslandi og SAMFÉS fyrir Degi félagsmiðstöðvanna. Félagsmiðstöðvar víða um land verða opnar fyrir gesti og gangandi þennan dag. Féló verður opið fyrir alla, unglinga, foreldra, forráðamenn, afa og ömmur og alla sem vilja kynna sér starf Féló. Féló verður opið milli kl. 18 og 20 á miðvikudag og gaman væri að sjá sem flesta.

Dagur félagsmiðstöðvanna er nú haldinn í fyrsta sinn en hann hefur síðast liðin sjö ár verið haldinn í félagsmiðstöðvunum í Reykjavík. Markmið hans er að gefa áhugasömum færi á að heimsækja félagsmiðstöðina í sínu sveitarfélagi eða hverfi, kynnast því sem þar fer fram, unglingunum og þeim viðfangsefnum sem þeir fást við með stuðningi starfsfólks félagsmiðstöðvanna. Allir eru velkomnir, sérstaklega foreldrar og „gamlir“ unglingar sem vilja rifja upp kynnin við gömlu félagsmiðstöðina sína.

Unglingarnir og unglingaráð félagsmiðstöðvanna bera hitann og þungann af undirbúningi dagsins og markmiðið er að sýna þverskurð af því gróskumikla og fjölbreytta starfi sem fer fram á hverjum stað. Megináherslan er á framlag og sköpunargleði unglinganna sjálfra enda unglingar eitt af mótandi menningaröflum samtímans og framtíðar.

Dagskrá félagsmiðstöðvadagsins verður breytileg milli félagsmiðstöðva. Í Þróttheimum í Reykjavík fer fram árleg kökukeppni, á Egilsstöðum ætla unglingar ásamt gestum og gangandi að mála veggi og gera fínt, allar félagsmiðstöðvar á Akureyri verða með opið upp á gátt  svo eitthvað sé nefnt. Víða verður boðið upp á kaffi, kakó, vöfflur og annað meðlæti en sums staðar er veitingasala fjáröflun unglinganna vegna ferðalaga eða annarra verkefna.



 

 

 

Föstudaginn 28. október er ballið CITY-FEST 2011

Félagsmiðstöðin Garðalundur í Garðabæ heldur ballið inni í  Sjálandsskóla og ætlar Féló að fara á það.  Á ballinu kemur fram hljómsveitin Sykur ásamt Birni Braga og diskaþeytirinn DJ Doddi Mix sér um að halda stuðinu uppi. Ballið hefst kl. 20:00 og lýkur kl. 23:30. Rúta fer frá Íþróttamiðstöðinni á Álftanesi kl. 19:50 og fer til baka um leið og ballið er búið, áætluð heimkoma er fyrir miðnætti.


Athugið að það er skylda að fara báðar leiðir með rútunni.


Einungis verður hægt að kaupa miða í forsölu og verða miðar seldir miðvikudagskvöldið 26. október í opnu húsi í Féló og á fimmtudaginn 27. október í hádegisfrímínútum inn í Féló.

Verð á ballið og í rútu fram og til baka er 1.300 kr (800 kr inn á ballið og 500 kr í rútu).
Starfsfólkið sem fer með á ballið eru: Auður, Elli og Karen. Sími Féló þetta kvöld verður 821-5812.

Leyfisbréfi verður að skila inn þegar greitt er fyrir miðann



Opið í kvöld mánudagskvöld
Það verður opið í Féló í kvöld þó það sé ekki kennsla í Álftanesskóla. Klukkan 17 er strákakvöld fyrir 5. bekk. Klukkan 19:30 verður síðan opið hús fyrir 8. - 10. bekk.
Sjáumst hress og kát.

 

 

 


 

Nú er um að gera að láta ljós sitt skína og taka nokkur spor. Þetta verður rosalegt... Elli er sigurstranglegastur hingað til!!!

Sá sem rústar keppninni fær mynd af sér á hetjuvegginn. Koma svo Lets dance !


 

Annar Heimsendir - Aftur Heimsendir

Síðasta sunnudagskvöld var fullt af fólki og því höfum við aftur opið næsta sunnudag. Opnum að þessu sinni klukkan 20 en þátturinn byrjar 20:25. Allir að mæta og fylgjast með Heimsendi !

 


Vinakvöld á föstudag

 

Í opnu húsi á föstudagskvöld (14.okt) er í boði að taka með sér EINN góðan vin úr öðrum skóla (verður að vera í 8.-10.bekk). Svo nú er um að gera að grípa tækifærið og kynna Féló fyrir góðum vini eða frændsystkini. En auðvitað má líka bara koma einn með sjálfum sér og hitta þá sem fyrir eru, því við erum jú öll góðir vinir.

 

Allt verður í gangi þetta kvöld: neonljós, tónlist, diskó-billiard, diskó-borðtennis,  x-factor á breiðtjaldinu, Ps3 í sjónvarpsherberginu - FIFA12.

 

 


Kósí-kvöld í kvöld

Það verður kósí-kvöld í kvöld hjá unglingadeildinni (miðvikudaginn 12.okt). Við ætlum að skella mynd í tækið og dempa ljósin. Popp verður í boði hússins en gos verður á góðu verði í sjoppunni. Allir að mæta og hafa það notalegt í góðra vina hópi.


 

Heimsendir 9.10.11

Mikill fjöldi kom saman í Féló til að horfa á Heimsendi á Stöð 2 sunnudagskvöldið 09.10.11. Yfir 50 nemendur mættu og áttu góða kvöldstund í Féló, boðið var upp á snakk og popp til að fullkomna stemminguna. Ekki skemmdi fyrir að einn af aðalleikurum þáttanna var stödd í Féló þetta kvöld en það var Bára Lind í 10. bekk Álftanesskóla. Hér fyrir neðan er mynd af aðalleikurunum og er Bára þar fánaberi.

 

 

Þess ber einnig að geta að Bára ásamt öðrum úr nemendaráði voru rétt komin frá landsmóti Samfés á Siglufirði/Ólafsfirði þegar þátturinn byrjaði. Því er ljóst að þetta hefur verið viðburðarík helgi hjá nemendaráði Álftanesskóla og starfsfólki Féló.

 


 

 

 

Heimsendir fyrir unglingadeild

8.-10. bekkur í Féló

 


 

 

ÞORIR ÞÚ?
Miðvikudaginn 5. október í FÉLÓ.Keppendur mæta í opið hús fyrir kl. 20.
Það þarf ekki að skrá sig fyrirfram, bara mæta á staðinn. Keppt verður í 3 þrautum sem reyna á hina ýmsu þætti. Sá sem hlýtur flest stig samanlagt vinnur.
Verðlaun í boði fyrir þann sem vinnur.

Þetta er ÁSKORUN !!!

 

 


 

FIFA 12 komið í Féló

Starfsmaður Féló stóð í langri biðröð í kvöld (miðvikudagskvöld) til að kaupa FIFA 12 tölvuleikinn í forsölu. FIFA 12 er því komið í Féló og á föstudagsopnun ætlum við að spila leikinn, þetta verður alvöru risa-spilun þar sem sjónvarps-herbergið verður notað með risaskjá og fullt af hátölurum. Gott væri ef einhver kæmi með sínar PS3 fjarstýringar því Féló á eingöngu 2 en fjórir geta spilað í einu ef fjarstýringarnar eru það margar. (Munið að merkja ykkar dót)

Ef þú vilt spila FIFA 12 þá mætir þú í Féló föstudagskvöldið næsta - við erum að tala um að spila RISA FIFA 12 !

Þau bestu mæta í búningum þeirra bestu og við vitum öll hvernig þeir búningar eru á litinn. Sýndu fram á hverjir eru bestir - bæði með búning og færni í FIFA 12.

 

 


Opið hús fyrir foreldra og forráðamenn

 

Næstkomandi þriðjudagskvöld, 27. september, verður FÉLÓ- félgasmiðstöð Álftaness með opið hús fyrir alla foreldra nemenda í Álftanesskóla. Við hvetjum alla til að koma og skoða miðstöðina og hitta fólkið sem vinnur þar með börnunum. Það skiptir nemendur miklu máli að gott samstarf sé milli allra aðila sem koma að þeirra málefnum. Sýnum starfi og frístundum barnanna áhuga með því að kynna okkur starf Féló og aðstöðuna.

Opna húsið verður í kjölfar Aðalfundar foreldrafélagsins sem hefst kl. 20 en þar verður stutt erindi frá Féló. Ég hvet því alla til að mæta á fundinn og enda á heimsókn í Féló. Nemendaráð Álftanesskóla ætlar að bjóða upp á vöfflukaffi þetta kvöld til styrktar starfseminni.

Ég skora á ykkur öll að mæta.

Íris Ósk Hafþórsdóttir, umsjónarmaður Féló.

 

 

________________________________________________________________

 

 

 

 

 

 

 

 


Vefsíða Féló opnar fimmtudaginn 22. september. Þann dag verður haustball fyrir 5. og 6. bekk milli klukkan 17 og 18:30. Um kvöldið verður síðan opnunarball vetrarins fyrir 8.bekk, 9.bekk og 10.bekk.